Kennsla felld niður frá kl. 15:00, 10. des.
2020-01-29T09:19:53+00:00Vegna afleitrar veðurspár fellur öll kennsla niður í Tónlistarskóla Árnesinga frá kl. 15.00 í dag, 10. desember.
Vegna afleitrar veðurspár fellur öll kennsla niður í Tónlistarskóla Árnesinga frá kl. 15.00 í dag, 10. desember.
Sunnudaginn 17. nóvember tóku eldri blásarasveitir Tónlistarskóla Árnesinga á Selfossi og í Þorlákshöfn, þátt í lúðrasveitamaraþoni í Silfurbergi í Hörpu. Fram komu skólalúðrasveitir af öllu landinu og léku frá kl. 11 – 18. Blásarasveitirnar okkar fluttu sameiginlega efnisskrá og gaman að sjá sveitirnar sameinaðar í þessu skemmtilega verkefni. Frammistaðan var til fyrirmyndar eins og vænta mátti.

Laugardaginn 16. nóvember fékk skólinn góða gesti, þegar 30 píanónemendur úr Tónskóla Sigursveins komu í heimsókn, ásamt fjórum kennurum. Hópurinn tók strætó á Selfoss og mætti um kl. 10:00 í tónlistarskólann, þar sem píanónemendur og kennarar TÁ tóku á móti þeim. Fyrir hádegi voru æfð fjórhent og sexhent lög í öllum stofum, þá kom stuttur útileikjatími í vetrarblíðunni í Sigtúnsgarði og loks píanó-hringekjutónleikar í sal skólans. Í lok dagskrár komu allir saman og fengu sér pizzu áður en haldið var heim á ný. Við þökkum nemendum og kennurum Tónskóla Sigursveins innilega fyrir komuna.
Laugardaginn 16. og miðvikud. 20. nóvember voru haldnir þrennir Suzuki-útskriftartónleikar. Fram komu blokkflautu-, gítar-, fiðlu- og sellónemendur sem útskrifuðust allt frá fyrstu tilbrygðum upp í 5. Suzuki-bók.
Það er alltaf jafn gaman að fylgjast með nemendum stíga sín fyrstu skref á tónlistarbrautinni, fylgjast með þeim eflast með hverju árinu og sjá þá svo blómstra í efri útskriftum.
Meðleikari á öllum tónleikunum var Einar Bjartur Egilsson. Innilegar hamingjuóskir til nemenda, kennara og foreldra.

Deildatónleikar tónlistarskólans, sjö talsins, voru haldnir í byrjun nóvember. Þessir tónleikar eru alltaf spennandi því þarna koma fram allar hljómsveitir og samspilshópar skólans. Tónleikarnir í ár voru engin undantekning þar á, dagskráin fjölbreytt og skemmtileg og nemendur voru sér og skólanum til sóma. – Sannkölluð veisla.
Blásaradeildartónleikar 30. október

Blokkflautudeildartónleikar 4. nóvember

[…]
Þriðja hvert ár, hefur Tónlistarskóli Árnesinga boðið nemendum í framhaldsdeild upp á námskeið sem heitir „Listin að stjórna“.
Á námskeiðinu læra nemendur undirstöðuatriði varðandi hljómsveitar- og kórstjórn, ásamt því að kynnast útsetningum.
Góður hópur nemenda sækir þetta skemmtilega námskeið í vetur, undir styrkri stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar.

Deildatónleikaröð Tónlistarskóla Árnesinga inniheldur sjö tónleika og standa þeir til 11. nóvember 2019.
Á tónleikunum koma fram allar hljómsveitir og samspilshópar skólans auk margra smærri samleiksatriða og einleikara. Alls má reikna með að um 300 nemendur hafi stigið á svið þegar tónleikaröðinni lýkur.
Blásaradeildartónleikarnir í Sunnulækjarskóla 30. október sl., voru mjög fjölbreyttir eins og meðfylgjandi myndir bera með sér. Nemendur stóðu sig með mikilli prýði og eiga hrós skilið fyrir frammistöðuna.
Sjá má upplýsingar um komandi tónleika hér á heimasíðunni, en aðgangur er öllum opinn og frítt inn. Áhugasömum veitist hér einstakt tækifæri til að fá innsýn í starfsemi Tónlistarskóla Árnesinga.
[…]
Tveir blokkflautunemendur, Kristín Viðja Vernharðsdóttir og Elín Karlsdóttir tóku þátt í Orda-blokkflautukeppni í Amsterdam dagana 24. – 27. október.
Að fá tækifæri til að taka þátt í keppni sem þessari er heilmikið æfintýri og mjög lærdómsríkt, en báðar fengu þær frábærar umsagnir frá dómnefndinni.
Auk þess að leika sjálfar sóttu stúlkurnar fjölda tónleika, m.a. hjá Lucie Horsch blokkflautuleikara.

Suzuki-píanónemendur (sem lokið hafa bók 1) mættu á upprifjunardag sunnudaginn 13. október, í tónlistarskólanum á Selfossi.
Á upprifjunardegi eru leikin lög sem nemendur hafa lært í Suzukináminu. Þeir sem hafa lært lengst leika öll lögin á dagskránni, en þeir sem skemur eru komnir á veg leika þau lög sem þeir hafa náð tökum á.
Upprifjunardagarnir eru alltaf skemmtilegir, en um leið krefjandi. Það var því stoltur hópur sem stillti sér upp til myndatöku í dagslok.

Kennarar Tónlistarskóla Árnesinga skiptast á að heimsækja alla nemendur í 2. bekk í grunnskólum sýslunnar með hljóðfærakynningar. Hver bekkur fær fimm heimsóknir yfir veturinn þar sem nemendum eru kynntir mismunandi hljóðfæraflokkar. Í hverri kynningu fá nemendur sögubrot, upplýsingar um hvernig hljóðfærin virka, heyra leikin lög, prófa sjálf hljóðfærin – og að auki eru sungin þrjú lög sem fylgja öllum hljóðfærakynningum vetrarins. Í vetur syngja nemendur lögin: Dvel ég í draumahöll, Krummi svaf í klettagjá og Tónlistarskólalagið.
Það er tekið afskaplega vel á móti tónlistarkennurunum þegar þeir mæta í heimsóknirnar og börnin mjög áhugasöm. Verkefnið hefur því verið gefandi fyrir alla sem að […]