2024-03-18T00:00:00+00:00

Views Navigation

Event Views Navigation

Today

Tónleikar blokkflautunemenda og gesta frá Færeyjum 10. mars

Dagana 8. - 10. mars verða haldnar æfingabúðir blokkflautusveita Tónlistarskóla Árnesinga, ásamt færeyskum blokkflautunemendum. Æfð verða samspilslög úr ýmsum áttum, s.s. færeysk og íslensk þjóðlög, renesansdansar, dægurlög og tangóar, sem verða svo flutt á tónleikum 10. mars. Tónleikarnir verða haldnir í sal skólans Eyravegi 9 á Selfossi (3. hæð) 10. mars kl. 14:00. Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!

Miðdeildartónleikar 12. mars í Stekkjaskóla

Miðdeildartónleikar Tónlistarskóla Árnesinga verða haldnir í sal Stekkjaskóla þriðjudaginn 12. mars, kl. 18:00. Á tónleikunum koma fram nemedur sem lokið hafa grunnprófi. Efnisskrá tónleikanna er fjölbreytt og gaman að sjá hve góðum tökum nemendur hafa náð á sín hljóðfæri, þegar hér er komið í tónlistarnáminu. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis - verið öll hjartanlega velkomin!

Framhaldsdeildartónleikar 14. mars í Hveragerðiskirkju

Framhaldsdeildartónleikar Tónlistarskóla Árnesinga verða haldnir í sal Hveragerðiskirkju fimmtudaginn 14. mars, kl. 18:00. Á tónleikunum koma fram nemedur sem lokið hafa miðprófi. Efnisskrá tónleikanna er fjölbreytt og gaman að sjá hve góðum tökum nemendur hafa náð á sín hljóðfæri, þegar hér er komið í tónlistarnáminu.   Aðgangur að tónleikunum er ókeypis – verið öll hjartanlega velkomin!

Prófadagar 19.- 20. mars

Prófadagar 19. og 20. mars Kennsla fellur niður á prófadögum. Ekki taka allir nemendur próf á prófadögum, en það eru kennarar sem meta hvenær nemendur eru tilbúnir til að taka næsta stigspróf. Ef spurningar vakna biðjum við nemendur/foreldra að setja sig í samband við kennara.

Framhaldsprófstónleikar Helgu Höeg 22. mars

FRAMHALDSPRÓFSTÓNLEIKAR Helga Höeg Sigurðardóttir lýkur framhaldsprófi í píanóleik frá Tónlistarskóla Árnesinga með opinberum tónleikum í sal tónlistarskólans Eyravegi 9 á Selfossi, 22. mars kl. 17:15.   Hvetjum við Sunnlendinga til að nýta sér þetta góða tækifæri til að hlýða á glæsilega tónleika, enda liggur mikil vinna að baki þegar kemur að útskrift frá skólanum.   Á dagskrá eru verk eftir Bach, Beethoven, Bartók, Rachmaninoff, Dvorák og Brahms. Meðleikur á fiðlu: Eyrún Huld Ingvarsdóttir. Kennari Helgu er Miklós Dalmay.   Aðgangur að tónleikum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!  

Páskafrí

Páskafrí 23. mars – 1. apríl 2024 Kennsla hefst aftur eftir páskafrí þriðjudaginn 2. apríl.

Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi