Suzuki-útskriftir á ýmis hljóðfæri

Þann 17. mars voru haldnir Suzuki-útskriftartónleikar þar sem nemendur á fiðlu, víólu, selló, gítar og píanó útskrifuðust úr Suzukibókum.

Fjölbreytt dagskrá þar sem margir stigu sín fyrstu spor á tónleikasviðinu – og stóðu sig vel 🙂

Suzuki-útskriftir á ýmis hljóðfæri2021-03-23T09:08:09+00:00

Glæsilegir framhaldsprófstónleikar Írisar Beötu

Íris Beata Dudziak, lauk framhaldsprófi í píanóleik með tilheyrandi framhaldsprófstónleikum í Hveragerðiskirkju þann 16. mars. Flutti Íris glæsilega einleiksdagskrá sem lauk með samleiksatriði með strengjakvartett skólans. Við óskum Írisi innilega til hamingju með þennan stóra áfanga og frábæra frammistöðu. Íris stundaði lengst af píanónám við Tónlistarskóla Rangæinga, en Ester Ólafsdóttir píanókennari leiddi hana síðasta spölinn hér hjá okkur.

 

Glæsilegir framhaldsprófstónleikar Írisar Beötu2021-03-23T08:41:22+00:00

Mið- og framhaldsdeildartónleikar 3. og 12. mars

Við höfum bjargað okkur með upptökum og Teams-tónleikahaldi í vetur, en eftir heils árs bindindi á hefðbundið tónleikahald fór loks að rofa til í mánuðinum.

Þann 3. mars héldum við miðdeildartónleika og 12. mars tvenna framhaldsdeildartónleika. Tónleikahaldið var auðvitað markað af smitvörnum þannig að þeir voru ekki auglýstir eins og í venjulegu ári og hver flytjandi mátti aðeins taka með sér einn gest – en mikið var ánægjulegt að geta aftur haldið tónleika og fá gesti í salinn.

Framhaldsdeildartónleikunum var líka streymt, sem var frumraun okkar í þeim efnum, og um leið ný leið til miðlunar efnis frá skólanum. Gekk streymið afskaplega vel, […]

Mið- og framhaldsdeildartónleikar 3. og 12. mars2021-03-22T16:22:22+00:00

Sumardagurinn fyrsti – frí

Öll kennsla fellur niður í tónlistarskólanum, á Sumardagurinn fyrsta 22. apríl.

Sumardagurinn fyrsti – frí2021-03-22T08:39:32+00:00

Sóttvarnareglur frá 1. mars í skólum

Nýjar sóttvarnareglur tóku gildi 1. mars (gilda til 30. apríl). Um er að ræða allnokkrar tilslakanir sem við gleðjumst mjög yfir,

en við höldum áfram persónulegum smitvörnum með handþvotti og sprittun – og mætum ekki veik/kvefuð í tónlistarskólann.

Foreldrar eru beðnir um að bera áfram grímur þegar þeir mæta í skólann.

– – –

Reglugerð um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar. Sjá HÉR

Helstu reglur fyrir tónlistarskóla:

 

Hámarksfjöldi einstaklinga í rými = 50 (starfsmenn + fullorðnir)

 

Hámarksfjöldi nemenda í rými = Fylgir reglum viðkomandi skólastigs:

– leikskóli: engin fjöldamörk,

– grunn-, framhalds- og háskóli: 150

 

Lágmarksfjarlægð milli starfsfólk og nemenda = 1 metri

 

Grímunotkun = Þar […]

Sóttvarnareglur frá 1. mars í skólum2021-03-02T09:23:15+00:00

Ritaraskipti

Ragnhildur Magnúsdóttir ritari Tónlistarskóla Árnesinga lét af störfum 1. mars. Við þökkum Ragnhildi innilega fyrir einstaklega ánægjulegt samstarf og þægilega nærveru sl. 20 ár, eða frá janúar 2001.

Við starfi ritara tekur Guðrún Helgadóttir. Við bjóðum hana velkomna til starfa og óskum henni góðs gengis á þessum nýja starfsvettvangi.

Ragnhildur og Guðrún við ritaraborðið.

Ritaraskipti2021-03-02T09:24:25+00:00

Páskafrí

Páskafrí 27. mars – 5. apríl.

Kennsla hefst aftur þriðjud. 6. apríl skv. stundaskrá

Páskafrí2021-03-24T09:01:32+00:00

Prófadagar – öll kennsla fellur niður

Öll kennsla fellur niður á prófadögum 15. – 17. mars.

Upplýsingar um hvort nemandi fari í próf fást hjá kennara, en ekki taka allir nemendur próf á þessum dögum.

 

Prófadagar – öll kennsla fellur niður2021-01-26T13:40:01+00:00

Öskudagur – frí vegna starfsdags kennara

Miðvikud. 17. febrúar (öskudag) fellur niður öll kennsla í tónlistarskólanum vegna starfsdags kennara.

Öskudagur – frí vegna starfsdags kennara2021-01-26T12:42:01+00:00

Hljóðfærakynningar aftur í gang

Það var ánægjulegt að geta sett skipulagðar heimsóknir tónlistarskólans í grunnskólana aftur af stað núna í janúar.

Tónlistarskólinn heimsækir öll börn í 2. bekk í grunnskólum Árnessýslu með hljóðfærakynningar, fimm sinnum yfir veturinn. Vegna Covid féllu kynningarnar niður að miklum hluta fyrir jól, en í síðustu viku fóru kennarar aftur af stað og nú með þéttara prógram til að koma öllum kynningunum að fyrir vorið.

Þeir Stefán og Vignir heimsóttu uppsveitir (þ.e. Kerhólsskóla, Grunnskóla Bláskógabyggðar á Laugarvatni og í Reykholti, Flúðaskóla og Þjórsárskóla) og kynntu rytmísk hljóðfæri og klassískan gítar, en þau Guðmundur K. og María kynntu strengjahljóðfærin fyrir nemendum Flóaskóla, Barnaskólans á […]

Hljóðfærakynningar aftur í gang2021-01-26T09:35:39+00:00
Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi