Námskeiðahald með nemendum
2019-03-20T16:43:54+00:00Auk hefðbundinnar kennslu standa nemendum oft til boða, námskeið af ýmsu tagi. Má þar nefna Suzuki-námskeið og upprifjunardagar, meistaranámskeið og landsmót blásara- og strengjasveita með alls konar námskeiðahaldi.
Nýverið voru haldin tvö skemmtileg og fræðandi námskeið í tónlistarskólanum.
Þann 14. mars var haldið námskeið í tali og tónum, um rytmíska tónlist fyrir nemendur í rytmísku, gítar- og fiðlunámi. Námskeiðið var í umsjón Björns Thoroddsen, Unnar Birnu Björnsdóttur, Skúla Gíslasonar og Sigurgeirs Skafta Flosasonar. Kynntu þau ýmsar tónlistartegundir, léku nokkur lög og ræddu við nemendur um tónlistina og framkomu á tónleikum og svöruðu spurningum áheyrenda.
Þann 18. mars var svo haldið fræðsluerindi með nemendum í framhaldsnámi […]


[…]
