Fulltrúar Tónlistarskóla Árnesinga á svæðistónleikum Nótunnar
2019-03-04T12:58:59+00:00Á Degi tónlistarskólanna 9. febrúar, fengu áheyrendur það skemmtilega verkefni að velja lög/flytjendur sem þóttu skara framúr á hverjum tónleikum. Deildarstjórar völdu úr þeim nemandahópi, fulltrúa Tónlistarskóla Árnesinga til þátttöku á svæðistónleika Nótunnar í Salnum Kópavogi, laugard. 16. mars.
Valið var vandasamt, enda stóðu allir flytjendur sig afskaplega vel.
Eftirtaldir nemendur urðu fyrir valinu, hvert úr sínum flokki:
Hrafnkell Örn Blöndal Barkarson, píanó – frumsamið verk
Eyrún Huld Ingvarsdóttir, fiðla – einleikur
Sædís Lind Másdóttir, söngur – einsöngur
Rytmasveitin No Sleep (Gylfi Þór Ósvaldsson rafgítar, Jakob Unnar Sigurðarson rafbassi, Valgarður Uni Arnarson rafgítar og Þröstur Ægir Þorsteinsson trommur) – samspil, opinn flokkur.
Við óskum þessum nemendum góðs gengis á […]


[…]
