Hljóðfærakynningar í grunnskólum
2019-10-30T10:33:31+00:00Kennarar Tónlistarskóla Árnesinga skiptast á að heimsækja alla nemendur í 2. bekk í grunnskólum sýslunnar með hljóðfærakynningar. Hver bekkur fær fimm heimsóknir yfir veturinn þar sem nemendum eru kynntir mismunandi hljóðfæraflokkar. Í hverri kynningu fá nemendur sögubrot, upplýsingar um hvernig hljóðfærin virka, heyra leikin lög, prófa sjálf hljóðfærin – og að auki eru sungin þrjú lög sem fylgja öllum hljóðfærakynningum vetrarins. Í vetur syngja nemendur lögin: Dvel ég í draumahöll, Krummi svaf í klettagjá og Tónlistarskólalagið.
Það er tekið afskaplega vel á móti tónlistarkennurunum þegar þeir mæta í heimsóknirnar og börnin mjög áhugasöm. Verkefnið hefur því verið gefandi fyrir alla sem að […]


