About helga

This author has not yet filled in any details.
So far helga has created 170 blog entries.

Styrkur frá Rótarýklúbbi Selfoss

2026-06-12T17:59:44+00:00

Rótarýklúbbur Selfoss tengist sögu Tónlistarskóla Árnesinga frá upphafi, því félagar rótarýklúbbsins komu að stofnun skólans árið 1955.

Tónlistarskólinn hefur í gegnum árin notið góðvildar Rótarý m.a. með styrkjum til hljóðfærakaupa eða til kaupa á öðrum búnaði. Á 70 ára afmælisári 2025 fékk skólinn m.a. styrk sem nýttur var til kaupa á gagnvirkum skjá fyrir tónfræðikennslu og þann 19. maí sl. veitti Rótarýklúbburinn tónlistarskólanum 300.000 kr. styrk, sem nýttur verður til hljóðfærakaupa á komandi vetri.

Við þökkum Rótarýklúbbi Selfoss innilega fyrir stuðninginn!

Helga Sighvatsdóttir, skólastjóri

Styrkur frá Rótarýklúbbi Selfoss2026-06-12T17:59:44+00:00

Skólaslit á níu stöðum

2026-06-12T17:11:10+00:00

Tónlistarskóla Árnesinga var slitið að vanda með níu tónleikum í maílok, þar sem skiptust á tónlistarflutningur og afhending prófskírteina. Þetta eru alltaf hátíðlegar stundir og gaman að sjá og heyra afrakstur vetrarins á skólaslitum.

Takk fyrir allan dugnaðinn kæru nemendur, takk fyrir stuðninginn kæru foreldrar og takk kæru kennarar fyrir faglega og flotta vinnu.

Hér fyrir neðan má sjá myndir frá nokkrum skólaslitanna.

/Helga Sighv.

[…]

Skólaslit á níu stöðum2026-06-12T17:11:10+00:00

Vortónleikar og Suzukiútskriftir

2026-06-12T16:49:01+00:00

Vorið er alltaf líflegur hvað tónleikahald varðar og má hér fyrir neðan sjá nokkrar myndir frá vortónleikum og Suzukiútskriftum í apríl og maí. Það var afskaplega ánægjulegt að hlýða á alla þessa flottu tónleika þar sem nemendur stóðu sig hver öðrum betur 🙂

/Helga Sighv.

[…]

Vortónleikar og Suzukiútskriftir2026-06-12T16:49:01+00:00

Allskonar tónleikar í apríl – Hringekja/Nótan/Eldri nemendur/Barnamenningarhátíð

2026-04-24T13:53:52+00:00

Tónleikadagskrá aprílmánaðar var sérlega fjölbreytt og skemmtileg með hringekjutónleikum, Nótutónleikum, tónleikum eldri nemenda og barnamenningahátíð.

Píanó-hringekjutónleikar voru haldnir í hátíðarsal Stekkjaskóla 15. apríl. Á tónleikunum fengu píanónemendur tækifæri til að koma fram í samspilsatriðum, sem er ekki svo algengt í píanónámi. Voru tónleikarnir mjög finir og runnu ljúflega i samfellu og hnökralaust. Píanistarnir voru glaðir og kátir að fá að taka þátt í samspili og áhorfendur áhugasamir og fögnuðu með kröftugu lófataki að lokinni hringekjunni.

Glaðir píanónemendur að afloknum píanó-hringekjutónleikum.

 

Svæðistónleikar Nótunnar fóru fram í Salnum í Kópavogi 18. […]

Allskonar tónleikar í apríl – Hringekja/Nótan/Eldri nemendur/Barnamenningarhátíð2026-04-24T13:53:52+00:00

Góðir gestir frá Þýskalandi

2026-04-10T17:06:30+00:00

Tvisvar til þrisvar á ári hefur Tónlistarskóli Árnesinga tekið á móti nemendahópum frá Þýskalandi, sem eru í umönnunarnámi. Í Íslandsför sinni heimsækja nemendurnir ýmsa skóla og stofnanir í Árnessýslu og fá upplýsingar um starfsemina. Hópurinn sem heimsótti okkur í mars var óvenju stór, enda tveir hópar sem mættust þarna á sama tíma. Sylke Leyk hefur haldið utan um skipulag við þetta frábæra verkefni hér á Íslandi ásamt kennurum sem fylgja hópunum.

Það hefur verið gaman að fræða þessa áhugasömu nemendur um skólann okkar og tónlistarskóla á Íslandi, uppfræða þá um hve öflugt tæki tónlistin er í allri umönnun og svara spurningum gestanna. […]

Góðir gestir frá Þýskalandi2026-04-10T17:06:30+00:00

Krakkabarokk í Hörpu – sérlega gæsilegir tónleikar

2026-04-10T11:05:38+00:00

Krakkabarokk á pálmasunnudag í Hörpu

Átta blokkflautunemendur úr Tónlistarskóla Árnesinga tóku þátt í Krakkabarokkhátíð á pálmasunnudag í Hörpu 29. mars, ásamt fjölda annarra hljóðfæranemenda og kóra. Tóku nemendur okkar þátt í öllum sameiginlegum verkum og að auki léku blokkflautunemendur einir Rondeau eftir Bach – sjá á 44. mínútu í þessu myndbandi: https://youtube.com/watch?v=6TSptbV8ddY&feature=shared

Tónleikarnir voru í samstarfi við Reykjavík Early Music Festival, en það voru tónlistarnemendur og kórsöngvarar af höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi og Norðurlandi eystra sem fengu þarna tækifæri til að leika með Kammerhópnum ReykjavíkBarokk.

Nemendahópurinn okkar stóð sig afskaplega vel og var skólanum og kennurum sínum til mikils sóma. Innilega til hamingju!

Hér fyrir neðan […]

Krakkabarokk í Hörpu – sérlega gæsilegir tónleikar2026-04-10T11:05:38+00:00

Mið- og framhaldsdeildartónleikarnir

2026-04-07T13:40:03+00:00

Mið- og framhaldsdeildartónleikar voru haldnir um miðjan mars í Hveragerðiskirkju og sal skólans á Selfossi.

Dagskrá beggja tónleika var fjölbreytt og skemmtileg og gaman að heyra nemendur á þessum stigum spreyta sig á metnaðarfullum verkum – og ná að skila þeim svo vel til áheyrenda.

Frá framhaldsdeildartónleikum 16. mars

Frá miðdeildartónleikum […]

Mið- og framhaldsdeildartónleikarnir2026-04-07T13:40:03+00:00

Skólastjóri lítur um öxl

2026-03-16T13:24:32+00:00

Skólastjóraskipti í Tónlistarskóla Árnesinga

Við þau tímamót að ég læt af störfum sem skólastjóri, er gaman að líta um öxl og horfa yfir farinn veg sl. 30 ár.

Ég hóf kennslu við Tónlistarskóla Árnesinga árið 1995, en hafði þá starfað í rúm 10 ár við Tónmenntaskóla Reykjavíkur og víðar.

Árið 2000 óskaði Róbert A. Darling, þá nýráðinn skólastjóri Tónlistarskóla Árnesinga, eftir að ég tæki að mér hlutverk aðstoðarskólastjóra sem ég þáði. Þar með hófst mjög gefandi og skemmtilegt ævintýri við að byggja upp og þróa skólann í gegnum ótrúlegar breytingar á málefnum tónlistarskóla, sem og tæknilegar breytingar.

Þegar litið er til baka er í raun […]

Skólastjóri lítur um öxl2026-03-16T13:24:32+00:00

Tímamót – Stjórnemendaskipti við Tónlistarskóla Árnesinga 1. ágúst 2026

2026-03-12T13:48:16+00:00

Það er komið að tímamótum í stjórn Tónlistarskóla Árnesinga, því 1. ágúst nk. láta bæði skólastjóri og aðstoðarskólastjóri af störfum.

Helga Sighvatsdóttir skólastjóri og Jóhann I. Stefánsson hafa bæði komið að stjórn tónlistarskólans sl. 25 – 26 ár. Helga sem aðstoðarskólastjóri 2000 – 2017 og skólastjóri frá 2018 – 2026 auk blokkflautukennslu og Jóhann sem stjórnandi á skrifstofu frá 2001 – 2017 og aðstoðarskólastjóri frá 2018 – 2026 auk málmblásturskennslu.

Helga hverfur til annarra verkefna, en Jóhann mun áfram sinna kennslu við skólann.

Skemmtileg og gefandi ár eru að baki, sem við þökkum innilega fyrir!

Helga og Jóhann

[…]

Tímamót – Stjórnemendaskipti við Tónlistarskóla Árnesinga 1. ágúst 20262026-03-12T13:48:16+00:00

Tónleikaröðin 9. – 13. febrúar mjög skemmtileg

2026-02-16T16:47:45+00:00

Tónleikaröð Tónlistarskóla Árnesinga vikuna 9. – 13. febrúar, sem haldin var í tilefni af Degi tónlistarskólanna, var mjög skemmtileg.

Haldnir voru sex tónleikar alls í Skálholtskirkju, í Hveragerðiskirkju, í hátíðarsal Stekkjaskóla á Selfossi og í Þorlákskirkju. Þema tónleikanna var Dýrin okkar og mjög gaman að heyra þá fjölbreytni í efnisvali sem nemendur og kennarar göldruðu fram.

Innilegar þakkir til nemenda og kennara fyrir vel undirbúin verkefni og fallegan flutning!

/Helga Sighv.

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir frá tónleikum vikunnar.

Skálholtskirkja 9.2.2026

[…]

Tónleikaröðin 9. – 13. febrúar mjög skemmtileg2026-02-16T16:47:45+00:00
Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi